Hvað er Fjóla ?

Fjóla - félag fólks með samþætta sjón - og heyrnarskerðingu var upphafilega stofnað þann 15.mars 1994 undir nafninu Daufblindrafélag Íslands

Daufblindrafélag Íslands var stofnað þann 15. mars 1994. Stofnfundurinn var haldinn í gömlu

setustofu Blindrafélagsins, að Hamrahlíð 17, þar sem nú eru til húsa augnlæknastofur.

Forsaga að stofnun félagsins er sú að um langt skeið höfðu menn velt því fyrir sér að fólk með

samþætta sjón- og heyrnarskerðingu hefði nokkra sérstöðu og rétt væri að það stofnaði sitt eigið

hagsmunafélag. Þá þegar hafði verið ákveðið að senda Kristínu Jónsdóttur, ráðgjafa hjá

Blindrafélaginu, í sérnám til New York á Helen Keller National Center.

Á stofnfundinn mættu fimm einstaklingar með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, en tveir þeirra

eru nú fallnir frá.

Á stofnfundinum voru lög félagsins samþykkt og giltu þau óbreytt næstu tólf árin, eða til vorsins

2006.

Fyrstu tólf árin var kveðið svo á um í lögunum að Blindrafélagið og Félag heyrnarlausra skyldu tilnefna

hvort sinn fulltrúann í fimm manna stjórn.

Árið 2006 var þessu ákvæði breytt og eftir það hafa allir fimm stjórnarmenn verið kosnir á

aðalfundum.

Stærsta breyting á lögum félagsins til þessa var þó gerð árið 2011 þegar nafni þess var breytt úr

Daufblindrafélag Íslands í Fjóla, félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Þá var merki

(logoi) félagsins einnig breytt til samræmis við nýtt nafn, en fyrsta merkið eignaðist félagið á 10 ára

afmæli sínu árið 2004. Merkið var afmælisgjöf frá Ingunni Önnu Þráinsdóttur grafískum hönnuði.

Ástæða nafnabreytingarinnar var einkum sú að félagsmönnum þótti orðið „daufblindur“ ljótt og alls

ekki lýsandi fyrir samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Langflestir þeirra sem búa við skerta sjón og

heyrn eru hvorki blindir né algjörlega heyrnarlausir eins og orðið „daufblindur“ gefur til kynna. Nafnið

Fjóla var valið til heiðurs Fjólu Björk Sigurðardóttur, en Fjóla Björk var einn af stofnfélögum félagsins

og var alla tíð mjög virk í starfi þess. Fjóla féll frá árið 2008.

Í rúmlega 20 ára sögu félagsins hafa formenn þess verið fimm; Friðjón Erlendsson, Guðlaug

Erlendsdóttir, Svanhildur Anna Sveinsdóttir, Kristjana Garðarsdóttir og Jón Jónasson, en hann féll frá

árið 2006.

Félagið hefur, frá stofnun, verið til húsa að Hamrahlíð 17. Fyrstu tvö árin hafði það skrifstofu á

fimmtu hæð hússins, en flutti þá niður á aðra hæð þar sem skrifstofur Blindrafélagsins voru. Nú hefur

það skrifstofu á fyrstu hæð ásamt skrifstofum Blindrafélagsins.

Fyrsti starfsmaður félagsins var, sem áður segir, Kristín Jónsdóttir. Hún starfaði til vors 1997, en þá

tók Lilja Ólöf Þórhallsdóttir við og starfaði til vors 2004 að undanskildum nokkrum mánuðum þegar

hún var í barneignarleyfi, en þá starfaði Sigrún Kristinsdóttir.

Árið 2004 tók Þórey Vigdís Ólafsdóttir við starfi ráðgjafa og starfaði til hausts 2008.

Þegar Þórey hætti störfum var fjárhagur félagsins svo bágborinn að stjórn ákvað að fresta ráðningu

nýs starfsmanns um óákveðinn tíma og ráðast í endurskoðun á fjáröflunum og skuldbindingum

félagsins.

Segja má að starfsemin hafi verið í algjöru lágmarki þá mánuði, stjórnarmenn sinntu sjálfir

nauðsynlegustu verkum, en engin virk þjónusta var til staðar, engin ráðgjöf né hagsmunabarátta af

neinu tagi.

Vorið 2009 hafði fjárhagurinn vænkast nokkuð og Hafdís María Tryggvadóttir var ráðin til starfa.

Hafdís starfaði til vorsins 2014, en þá var Guðný Katrín Einarsdóttir, starfandi ráðgjafi, ráðin til

félagsins.

Frá upphafi hefur félagið lagt mikla áherslu á að fylgjast með og læra af erlendum systurfélögum

sínum, einkum norrænum. Félagið hefur frá upphafi tekið þátt í norrænu samstarfi og hefur sótt

norræna formannafundi frá stofnun og haldið nokkra slíka hér á landi.

Þá hafa fulltrúar þess sótt nokkra fundi á vettvangi evrópsk samstarfs og reynt að fylgjast með

alþjóðlegu samstarfi um málefni fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.

27. júní hefur verið valinn alþjóðlegur dagur fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og

undanfarin fjögur ár hefur Fjóla stofnað til eftirminnilegra viðburða þann dag, m.a. fengið erlenda

fyrirlesara og staðið fyrir kynningu á félaginu og málefnum félagsmanna.

Stofnun Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga í

desember árið 2008 var tvímælalaust stærsta og mikilvægasta skref í hagsmunabaráttu fólks með

samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Félagið kom með virkum hætti að undirbúningi þess að

miðstöðin var stofnuð og átti sannarlega þátt í því að þá var, í fyrsta sinn á Íslandi, lögfest þjónusta

við fólk með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og það viðurkennt sem sérstök fötlun sem bæri að

þjónusta sem slíka. Áður hafði ein stofnun þjónustað sjónskerðingu en önnur heyrnarskerðingu og

samvinna þessara stofnana hvað varðaði þjónustu við einstaklinga var lítil og ómarkviss.

Félagið hefur, allt frá stofnun, lagt mikla vinnu í fjáraflanir af ýmsu tagi til þess, fyrst og fremst, að

geta haldið úti ráðgjöf, hagsmunabaráttu og félagsstarfi. Fjáröflunarróðurinn hefur oft verið þungur

og fyrstu árin má segja að félagið hafi varla verið meira en nafn á blaði því engir fjármunir voru til að

halda uppi félagsstarfi eða þjónustu við félagsmenn og fjölskyldur þeirra. Á síðustu árum hefur

fjárhagurinn heldur vænkast, bæði með tilkomu smávægilegra fjárstyrkja frá hinu opinbera og einnig

hefur aðild að Öryrkjabandalagi Íslands fært félaginu nokkuð.

Fjáraflanir eru þó, því miður, allt of stór og tímafrekur þáttur af starfi ráðgjafa. Félagið leggur áherslu

á að ráðgjafi hafi sérmenntun sem nýtist í starfi með félagsmönnum og fjölskyldum þeirra og því

sorglegt að tími hans fari að miklu leyti í að afla fjár til starfseminnar í stað þess að nýta starfskraftana

og tímann í einstaklinga sem þurfa á því að halda.

Lög Fjólu

Lög Fjólu - félags fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu

 

1.   Nafn og tilgangur:

 1. gr. Nafn félagsins er Fjóla - félag fólks með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík.

2. gr.

Tilgangur félagsins er að vinna að hvers konar menningar og hagsmunamálum einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.

3. gr. Félagið getur átt aðild að samtökum þeim, innlendum sem erlendum sem stjórn félagsins ákveður enda sé stefna þeirra og markmið í samræmi við markmið og tilgang Fjólu.

 

2.   Aðild:

4. gr. Fullgildur félagsmaður er hver sá sem hefur það alvarlega sjón- og heyrnarskerðingu að það hindri eðlileg samskipti við umhverfið og er orðinn 18 ára að aldri.

5. gr. Styrktarfélagi getur hver sá orðið sem vill styðja málefni  daufblindra einstaklinga. Styrktarfélagar hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum en ekki atkvæðisrétt.

Styrktarfélagar geta átt sæti í nefndum og ráðum er sinna einstökum verkefnum innan Fjólu og stjórn félagsins skipar. Styrktarfélagar eru kjörgengir til stjórnar skv. 10. gr. 5. kafla.

6. gr. Foreldri eða forsjármaður daufblinds barns sem er yngra en 18 ára getur gerst fullgildur félagsmaður með þeim réttindum og skyldum sem fullgildir félagar Fjólu hafa. Þegar barnið verður 18 ára getur foreldrið eða forsjármaðurinn orðið styrktarfélagi. Búi daufblindur einstaklingur við það mikla skerðingu að hann treysti sér ekki sjálfur til að gegna félagslegum skyldum sínum eða gæta hagsmuna sinna getur hann tilnefnt talsmann sinn sem þá nýtur réttinda fullgilds félaga. Slík tilnefning skal send stjórn félagsins og bókuð í gerðarbók.

7. gr. Hver og einn félagsmaður skal greiða fullt félagsgjald eins og ákveðið er á aðalfundi. 

 

3.   Félagsfundir:

8. gr. Almennan félagsfund skal boða með viku fyrirvara, bréflega með dagskrá. Boða skal til almenns félagsfundar ef minnst ¼ félagsmanna óska þess og senda stjórn félagsins skriflega beiðni.


4.Aðalfundur

9. gr.

Aðalfundur hefur úrslitavald í öllum málefnum félagsins og skal hann haldinn ár hvert eigi síðar en 31. maí. Aðalfund skal boða skriflega eða með viðeigandi samskiptamáta eftir þörfum einstakra félaga með a.m.k. fjögurra vikna fyrirvara til allra félagsmanna. Tillögur að lagabreytingum og ársreikningar skulu liggja frammi á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund. Uppfylli aðalfundur ekki einhver af þessum skilyrðum þarf samþykki meirihluta fundarmanna til að aðalfundur sé löglegur.


10. gr. Fastir dagskrárliðir aðalfundar skulu:

a. Formaður félagsins setur fundinn

b. Kosning fundarstjóra

c. Kosning ritara

d.   Fundargerð síðasta aðalfundar lesin og borin upp til samþykktar

e.   Formaður flytur skýrslu stjórnar

f. Ársreikningur félagsins, fyrir síðasta ár, áritaður af löggiltum endurskoðanda, kynntur og lagður fram til samþykktar

g.   Ákveðið félagsgjald og gjalddagi þess

h.   Kosning formanns og annarra stjórnarmanna auk tveggja skoðunarmanna reikninga

i. Lagabreytingar

j. Önnur mál


11. gr.

Tillögum að lagabreytingum skal skilað skriflega eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund. Aðalfundur skal afgreiða tillögur að lagabreytingum sbr. 9. og 10. gr. þessara laga. Tillögum að lagabreytingu skal fylgja greinargerð þar sem breyting er skýrð nánar. Til að lagabreytingartillaga nái fram að ganga fram samþykki a.m.k. 2/3 hluta aðalfundur. Samþykki aðalfundur lagabreytingu öðlast hún gildi þá og þegar, nema annað sé tekið fram í tillögunni.



12. gr.

Stjórn Fjólu skal kosin í leynilegum kosningum á aðalfundi sbr.10. gr. Sé aðeins einn í framboði hverju sinni er viðkomandi sjálfkjörinn með samþykki meirihluta fundarins.  Stjórnin skal skipuð fimm einstaklingum og tveimur til vara. 

Náist ekki að fullmanna stjórn með fullgildum félögum má kjósa allt að tvo styrktarfélaga í stjórn en þó aðeins í undantekningarskyni. 


Formaður skal kjörinn sérstaklega og skal hann vera úr hópi fullgildra félaga.

Stjórn skiptir með sér verkum að loknum aðalfundi hverju sinni, en varaformaður skal ætíð vera úr hópi fullgildra félaga. 

Styrktarfélagar mega gegna embættum gjaldkera, ritara og meðstjórnanda. Allir stjórnendur skulu kosnir til tveggja ára í senn. 

Annað árið eru kjörnir formaður, tveir aðalstjórnarmenn  og einn varamaður, en hitt árið tveir aðalstjórnarmenn og einn varamaður.


13. gr. Stjórn Fjólu fer með málefni félagsins á milli aðalfunda. Stjórnin framkvæmir ákvarðanir aðalfunda og félagsfunda. Gerðarbók skal halda yfir fundi stjórnar.

14. gr. Stjórnin boðar til aðalfundar og undirbýr hann, leggur fyrir reikninga síðasta árs, áritaða af löggiltum endurskoðanda, hefur umsjón með eigum félagsins og gætir hagsmuna þess í öllum greinum.

 

6.   Slit félagsins:

 15. gr. Kjósi félagsmenn Fjólu að leggja niður starfsemi félagsins eða sameinast öðru félagi þarf að ræða slíka tillögu á tveimur fundum og skal annar vera aðalfundur. Til að slíkt nái fram að ganga þarf að minnsta kosti tvo þriðju greiddra atkvæða á hvorum fundinum.

 

Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi þann 15. mars 1994, á aðalfundi 28. apríl 2006, á framhaldsaðalfundi 3. júní 2011 og á aðalfundi 11. maí 2019 og aðalfundi þann 27.apríl 2024